Fæðingarorlofssjóður
Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof fer félagsmálaráðherra með yfirstjórn fæðingar- og foreldraorlofsmála. Fæðingarorlofssjóður skal vera í vörslu Vinnumálastofnunar sem sér um reikningshald og daglega afgreiðslu sjóðsins í umboði félagsmálaráðherra. Sjóðurinn annast greiðslur til foreldra sem njóta réttinda til greiðslna í fæðingarorlofi og ber félagsmálaráðherra að gæta þess að sjóðurinn hafi nægilegt fé til að standa við skuldbindingar sínar. Sjóðurinn gerir árlega fjárhagsáætlun sem félagsmálaráðherra leggur fyrir fjármálaráðherra við undirbúning fjárlaga.
Fæðingarorlofssjóður er fjármagnaður með hluta af tryggingagjaldi (sbr. lög um tryggingagjald) auk vaxta af innistæðufé sjóðsins. Tryggingagjald er greitt af atvinnurekendum og er ákveðið hlutfall af heildarupphæð staðgreiðsluskyldra launa. Sjálfstætt starfandi foreldri greiðir jafnframt tryggingagjald af reiknuðu endurgjaldi. Kostnaður af rekstri sjóðsins greiðist af tekjum hans. Reikningar Fæðingarorlofssjóðs eru endurskoðaðir af Ríkisendurskoðun og birtir ár hvert í Lögbirtingablaðinu.
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun -
Fæðingarorlofssjóður
Strandgötu 1
530 Hvammstanga
Netfang / Fyrirspurnir
faedingarorlof@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:30
Símatími er frá 09:00 - 15:00
Sími: 582-4840
Fax: 582-4850
Kennitala:
450101 – 3380
Bankaupplýsingar:
111 – 26 – 1800







