Fæðingarorlofssjóður
| Fæðingarorlof sjálfstætt starfandi ( 39 ) | Fæðingarorlofssjóður ( 46 ) |
| Fæðingarstyrkur námsmanna ( 31 ) | Fæðingarstyrkur utan vinnumarkaðar, minna en 25% ( 29 ) |
| Innflytjendur ( 10 ) | |
|
1. Hverjir eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði? Þeir sem hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns eða þann tíma þegar barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur. Taka skal til greina starfstíma foreldris í öðrum EES-ríkjum hafi það starfað á innlendum vinnumarkaði a.m.k. síðasta mánuðinn á 6 mánaða tímabilinu. Skilyrði er að foreldri hafi hafið störf á innlendum vinnumarkaði innan 10 virkra daga frá því það hætti störfum á vinnumarkaði í öðru EES-ríki. 2. Hvað telst vera samfellt starf?
Barn fætt fyrir 1. júní 2008: Með samfelldu starfi er átt við að foreldri hafi verið í a.m.k. 25% starfi í hverjum mánuði á innlendum vinnumarkaði yfir tiltekið tímabil. Enn fremur telst til samfellds starfs eftirfarandi tilvik: Barn fætt eftir 1. júní 2008: Í viðbót við það sem á við um börn fædd fyrir 1. júní 2008 telst sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins til starfstíma. 3. Hverjir eiga rétt á fæðingarstyrk? Skilyrði fyrir greiðslu fæðingarstyrks er að foreldri eigi lögheimili hér á landi við fæðingu barns og hafi átt það í 12 mánuði þar á undan. Ef foreldri hefur búið í öðru EES ríki á þessu tímabili en er komið til Íslands fyrir fæðingu barnsins, þá er heimilt að greiða fæðingarstyrk ef framvísað er E-104 vottorði sem sýnir hvaða tryggingatímabil er lokið og að um a.m.k. 12 mánaða samfellt tímabil sé að ræða. Maki útsends starfsmanns telst þó tryggður með honum þrátt fyrir að vera með lögheimili erlendis ef það er á EES-svæðinu. 4. Ég er heimavinnandi og bý erlendis á ég einhvern rétt hér á landi? Nei, til að eiga rétt hér á landi þá þarftu að eiga lögheimili hér á landi við fæðingu barns og hafa átt það í 1 ár. Ef þú átt lögheimili hér á landi við fæðingu barns en uppfyllir ekki lögheimili í 1 ár hér á landi þá þarftu að senda inn E104 vottorð sem staðfestir að þú hafir átt lögheimili á EES svæði. Maki útsends starfsmanns telst þó tryggður með honum þrátt fyrir að vera með lögheimili erlendis ef það er á EES-svæðinu. 5. Á ég rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði ef ég er ekki sjúkratryggð á Íslandi? Gilda sömu reglur fyrir ríkisborgara frá löndum innan EES og utan EES? Almennt hefur sjúkratrygging ekki áhrif á rétt foreldris til greiðslu fæðingarorlofs. Réttur til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði er háður því að foreldri hafi verið samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingardag barns. Réttur til fæðingarstyrks er háður því að foreldri hafi átt lögheimili við fæðingu barns og síðustu 12 mánuði þar á undan eða að foreldri hafi átt lögheimili hér á landi við fæðingu barns en uppfyllir ekki lögheimili í 1 ár hér á landi en hefur sent inn E104 vottorð sem staðfestir að það hafi átt lögheimili á EES svæði. Í ákveðnum tilvikum getur réttur til sjúkradagpeninga veitt foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eða til greiðslu fæðingarstyrks, s.s. þegar foreldri hefur látið af launuðum störfum vegna heilsufarsástæðna eða hefur ekki getað lokið námi vegna meðgöngutengdra heilsufarsástæðna og hefur fengið greidda sjúkradagpeninga, er á biðtíma eftir þeim eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins, skv. lögum um almannatryggingar. Um sjúkratryggingu og rétt til sjúkradagpeninga vísast að öðru leyti til laga um almannatryggingar og Tryggingastofnunar ríkisins, www.tr.is.
6. Ef ég hef búið og starfað á Íslandi í 6 mánuði eða lengur en ekki er búið að skrá lögheimili mitt í þjóðskrá (er á utangarðsskrá af því ekki er búið að afgreiða dvalarleyfi frá Útlendingastofnun) á ég þá rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði? Já þú getur átt rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði ef þú hefur starfað í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Skiptir þá ekki máli hvar lögheimili þitt er. Þú getur hins vegar ekki átt rétt á fæðingarstyrk nema að eiga lögheimili á Íslandi við fæðingu barns og hafa átt það í 12 mánuði þar á undan. Ef þú átt lögheimili hér á landi við fæðingu barns en uppfyllir ekki lögheimili í 1 ár hér á landi þá þarftu að senda inn E104 vottorð sem staðfestir að þú hafir átt lögheimili á EES svæði.
7. Ef við erum ekki skráð í sambúð á Íslandi ( erum ríkisborgarar frá landi innan EES) á faðir barnsins þá rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði? Hvaða gögnum þarf að skila með umsókn ef hann á rétt á greiðslum? Ef faðirinn hefur starfað á innlendum vinnumarkaði síðustu sex mánuði fyrir fæðingardag barns getur hann átt rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Ef hann hefur átt lögheimili á Íslandi við fæðingu barns og síðustu 12 mánuði þar á undan getur hann átt rétt á greiðslu fæðingarstyrks svo og ef hann hefur átt lögheimili hér á landi við fæðingu barns en uppfyllir ekki lögheimili í 1 ár hér á landi en hefur sent inn E104 vottorð sem staðfestir að hann hafi átt lögheimili á EES svæði. Ef hann uppfyllir hins vegar ekkert af framangreindum skilyrðum á hann ekki rétt á greiðslu vegna fæðingarorlofs á Íslandi. Ef faðirinn á rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og móðir er búsett erlendis þarf faðir að skila inn; umsókn, vottorði um áætlaðan fæðingardag og fæðingarvottorði, tilkynningu til vinnuveitanda um fæðingarorlof (umsækjandi og vinnuveitandi verða báðir að kvitta undir) og afrit af tveimur síðustu launaseðlum. Ef faðir ætlar að nýta skattkortið hjá Fæðingarorlofssjóði þá þarf það að berast fyrir 20. þess mánaðar sem greiðsla fer fram. Einnig þarf að berast forsjársamningur/faðernisviðurkenning og samþykki forsjárforeldris fyrir fæðingarorlofi forsjárlauss foreldris ef foreldrar eru ekki skráðir í sambúð. Eftir atvikum gæti einnig þurft að berast hjúskaparvottorð að utan ef það á við. Loks þarf að skila inn staðfestingu á rétti/réttindaleysi frá búsetulandi. 8. Falla greiðslur niður ef ég fer til heimalandins í frí ? (T.d í 1-3 mánuði). Nei þær gera það ekki. Um áunninn rétt er að ræða og eru greiðslur því ekki háðar veru foreldris á Íslandi á þeim tíma sem það er í fæðingarorlofi. Hafa verður í huga að einungis er greitt inn á reikning þess foreldris sem er í fæðingarorlofi og reikningurinn verður að vera á Íslandi. 9. Ef ég er ríkisborgari utan EES og hef verið með lögheimili á Íslandi í meira en 6 mánuði en er með dvalarleyfi með takmörkunum hvaða reglur gilda þá um rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði? Réttur til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði er ekki háður því að foreldri hafi átt lögheimili á Íslandi við fæðingu barns heldur að foreldrið uppfylli skilyrðið um að hafa verið samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 6 mánuði fyrir fæðingardag barns. Ef þú uppfyllir ekki skilyrði um rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði þá kemur til skoðunar hvort þú eigir rétt á fæðingarstyrk. Eru skilyrðin þá þau að þú hafir átt lögheimili á Íslandi við fæðingu barns og í 12 mánuði þar á undan. Ef þú hefur átt lögheimili á Íslandi við fæðingu barns en ekki í 12 mánuði þar á undan þá geturðu skilað inn E-104 vottorði um að þú hafir verið búsett á EES svæðinu á þeim tíma. Ef þú hefur átt lögheimili á Íslandi við fæðingu barns en ekki í 12 mánuði þar á undan og þú kemur ekki af EES svæðinu þá er heimilt að líta til ákvæða í þeim samningum sem gerðir hafa verið við önnur ríki og ná til greiðslna vegna fæðingar barns, ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur. 10. Ég var búsett/búsettur erlendis og með lögheimili þar við fæðingu barns en flutti svo lögheimili mitt til Íslands eftir að barnið fæddist. Á ég rétt á greiðslum frá Íslandi? Flutningur til Íslands eftir fæðingu barns veitir ekki rétt til greiðslna hafi ekki verið fyrir hendi réttur til fæðingarorlofs við fæðingu barns. |
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun -
Fæðingarorlofssjóður
Strandgötu 1
530 Hvammstanga
Netfang / Fyrirspurnir
faedingarorlof@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:30
Símatími er frá 09:00 - 15:00
Sími: 582-4840
Fax: 582-4850
Kennitala:
450101 – 3380
Bankaupplýsingar:
111 – 26 – 1800

















