Fæðingarorlofssjóður
| Fæðingarorlof sjálfstætt starfandi ( 39 ) | Fæðingarorlofssjóður ( 46 ) |
| Fæðingarstyrkur námsmanna ( 31 ) | Fæðingarstyrkur utan vinnumarkaðar, minna en 25% ( 29 ) |
| Innflytjendur ( 10 ) | |
|
1. Þarf að greiða í lífeyrissjóð og stéttarfélag? Þeir sem fá greiddan fæðingarstyrk utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfi greiða ekki í lífeyrissjóð og stéttarfélag?
2. Get ég greitt í séreignarsjóð? Þeir sem fá greiddan fæðingarstyrk utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfi hafa ekki möguleika á því að greiða í séreignarsjóð.
3. Ég er að fá greiðslur frá TR þarf ég að gera eitthvað? Þeir sem eru að fá greiðslur frá TR þurfa að tilkynna þeim hvenær ætlunin er að hefja töku fæðingarorlofs.
4. Ég er heimavinnandi og bý erlendis á ég einhvern rétt hér á landi? Nei, til að eiga rétt hér á landi þá þarftu að eiga lögheimili hér á landi við fæðingu barns og hafa átt það í 1 ár. Ef þú átt lögheimili hér á landi við fæðingu barns en uppfyllir ekki lögheimili í 1 ár hér á landi þá þarftu að senda inn E104 vottorð sem staðfestir að þú hafir átt lögheimili á EES svæði. Maki útsends starfsmanns telst þó tryggður með honum þrátt fyrir að vera með lögheimili erlendis ef það er á EES-svæðinu. 5. Ég hef unnið aðeins á síðustu 6 mán. skiptir það einhverju máli? Ef þú hefur eitthvað verið að vinna síðustu 6 mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag þá þarf að senda inn tilkynningu vinnuveitanda um tilhögun fæðingarorlofs eða starfslokavottorð ef þú ert hætt/ur að vinna.
6. Þarf að senda inn skattkort? Já það þarf að senda inn skattkort fyrir 20. þess mánaðar sem greiðsla fer fram.
7. Fæ ég skattkortið mitt sjálfkrafa til baka þegar greiðslum er lokið? Þegar greiðslum er lokið verður skattkortið sent til baka á skráð heimilisfang.
8. Get ég skipt fæðingarstyrksgreiðslum? Nei, þeir sem eru að fá greiddan fæðingarstyrk geta ekki skipt greiðslunum. Fæðingarstyrk verður að taka samfellt og það má ekki þiggja greiðslur frá öðrum á meðan maður fær greiddan fæðingarstyrk.
9. Við hvað er miðað þegar foreldrar utan vinnumarkaðar eiga rétt á greiðslum? Sé umsækjandi í innan við 25% starfshlutfalli telst hann vera utan vinnumarkaðar. Einnig ef hann nær ekki 6 mánaða samfelldu starfi fyrir fæðingardag barns.
10. Ef ég vil fá borgað t.d. í september, hvernig merki ég þá við frá hvaða tíma ég ætla í orlof? Þar sem allar greiðslur Fæðingarorlofssjóðs eru greiddar eftir á, þarftu að velja að byrja greiðslur, mánuði fyrr en þú áætlar að fá greiðsluna í hendur. Dæmi, ef þú ætlar að fá greiðslu um mánaðamótin september/október þarftu að hefja töku orlofs í september. Ekki er hægt að byrja töku fæðingarstyrks fyrr en í fæðingarmánuði barns.
11. Hvenær þarf að senda umsókn inn? Umsókn þarf að skila inn til Vinnumálastofnunar eða til Fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga í síðasta lagi þremur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag.
12. Við erum ekki skráð í sambúð, hverju þarf að skila inn? Barn fætt fyrir 1. júní 2008: Þið þurfið að senda inn gögn frá sýslumanninum um að þið farið með sameiginlega forsjá. Barn fætt eftir 1. júní 2008: Ef þið eruð ekki skráð í sambúð þá þarf forsjárforeldri barns að veita samþykki sitt fyrir fæðingarstyrk forsjárlauss foreldris. Einnig þarf að berast faðernisviðurkenning eða samningur um sameiginlega forsjá sem gerður er hjá sýslumanni. 13. Hvenær er hægt að hefja töku fæðingarstyrks? Töku fæðingarstyrks má hefja í fæðingarmánuði barns eða seinna.
14. Hversu hár er fæðingarstyrkur lægri? 15. Eiga þeir sem eiga rétt á fæðingarstyrk lægri rétt á lengingu fæðingarorlofs v/sjúkdóms móður á meðgöngu? Nei, þær sem fá greiddan fæðingarstyrk eiga ekki rétt á lengingu.
16. Er hægt að leggja inn greiðslur á bankareikning maka? Nei, greiðslur verða að leggjast inn á reikning og kennitölu umsækjanda.
17. Hvar fæ ég vottorð um áætlaðan fæðingardag? Vottorð um áætlaðan fæðingardag er hægt að fá hjá ljósmóður.
18. Fæ ég senda launaseðla frá Fæðingarorlofssjóði? Nei, allir launaseðlar eru sendir í heimabanka viðkomandi.
19. Hversu langt er fæðingarorlofið hjá móður og föður? Móðir á rétt á þremur mánuðum og faðir á rétt á þremur mánuðum. Auk þess eiga foreldrar sameiginlegan rétt, þ.e. þrír mánuðir til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða foreldrar skipt því með sér.
20. Hvenær fellur réttur fæðingarorlofs niður? Réttur til fæðingarorlofs fellur niður er barnið nær 18 mánaða aldri.
21. Hvernig kem ég umsókninni til ykkar? Hægt er að senda umsóknir og önnur gögn með pósti, tölvupósti eða faxi. Skattkort verður að berast með pósti þar sem við þurfum frumrit.
22. Er réttur foreldra til fæðingarstyrks yfirfæranlegur? Barn fætt fyrir 1. júní 2008: Ef annað foreldranna andast áður en barn nær 18 mánaða aldri og hefur þá ekki tekið út allt fæðingarorlofið sitt. Þá færist sá réttur sem hinn látni hefur ekki þegar nýtt sér yfir til eftirlifandi foreldris. Barn fætt eftir 1. júní 2008:
23. Eiga foreldrar fjölbura rétt á lengra orlofi? Sameiginlegur réttur foreldra til greiðslna framlengist um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
24. Eiga foreldrar einhvern rétt ef um fósturlát er að ræða? Sameiginlegur réttur er tveir mánuðir vegna fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu. Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð. Foreldrar verða að vera gift eða skráðir í sambúð til þess að faðirinn eigi rétt.
25. Eiga foreldrar einhvern rétt ef um andvana fæðingu er að ræða? Sameiginlegur réttur er þrír mánuðir vegna andvana fæðingar eftir 22 vikna meðgöngu. Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð. Foreldrar verða að vera gift eða skráðir í sambúð til þess að faðirinn eigi rétt.
26. Hvernig er með mæður sem veikjast í tengslum við fæðingu, hvaða rétt hafa þær? Heimilt er að framlengja rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði til móður um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda hennar sjálfrar sem eru í tenglum við fæðingu. Miðað er við að veikindi móður megi rekja til fæðingar sem valdi því að hún geti ekki annast barn sitt.
27. Eiga foreldrar rétt á lengra fæðingarorlofi ef barn þarf að dveljast á sjúkrahúsi? Þurfi barn að dveljast lengur en sjö daga á sjúkrahúsi vegna veikinda eða fyrirburafæðingar er heimilt að framlengja samanlagðan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði um þann dagafjölda. Upphaf greiðslna miðast þá við fæðingardag barns og lok við fyrstu heimkomu þess, að hámarki fjórum mánuðum síðar.
28. Eiga foreldrar rétt á lengra fæðingarorlofi vegna alvarlegra veikinda barns? Ef barn er alvarlega veikt og nánari umönnun foreldris er nauðsynleg er heimilt að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði í allt að þrjá mánuði. (Getur bæst við fjóra mánuði vegna sjúkrahúsdvalar).
29. Hver er upphafsdagur fæðingarorlofs ef um ættleiðingu er að ræða? Við ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur er miðað við þann tíma þegar barnið kemur inn á heimilið. Ef barn er sótt erlendis er heimilt að hefja töku orlofs við upphaf ferðar. |
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun -
Fæðingarorlofssjóður
Strandgötu 1
530 Hvammstanga
Netfang / Fyrirspurnir
faedingarorlof@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:30
Símatími er frá 09:00 - 15:00
Sími: 582-4840
Fax: 582-4850
Kennitala:
450101 – 3380
Bankaupplýsingar:
111 – 26 – 1800

















