Beint á leiðarkerfi vefsins

Fæðingarorlofssjóður

Fæðingarorlof sjálfstætt starfandi ( 39 )Fæðingarorlofssjóður ( 46 )
Fæðingarstyrkur námsmanna ( 31 )Fæðingarstyrkur utan vinnumarkaðar, minna en 25% ( 29 )
Innflytjendur ( 10 )
 
  1. Verð ég að greiða í lífeyrissjóð, stéttarfélag og séreignarsparnað?
  2. Greiðir Fæðingarorlofsjóður framlag á móti í séreignarsjóð?
  3. Hvaða máli skiptir það hvort ég greiði í stéttarfélag eða ekki?
  4. Þarf að senda inn skattkort?
  5. Fæ ég skattkortið mitt sjálfkrafa til baka þegar síðustu greiðslu er lokið?
  6. Ég er sjálfstætt starfandi einstaklingur, hverju þarf ég að skila inn?
  7. Við erum ekki skráð í sambúð, þarf að skila einhverju sérstöku vegna þess?
  8. Getur faðir hafið töku fæðingarorlofs fyrir áætlaðan fæðingardag barns?
  9. Hvar skrái ég að ég ætli að dreifa orlofinu mínu á fleiri mánuði?
  10. Hvernig fær maður faðernisviðurkenningu?
  11. Ég ætla að vera í fæðingarorlofi í mánuð eftir fæðingu barns en töku afgangsins er ekki ákveðinn hvernig sný ég mér í því?
  12. Ég er sjálfstætt starfandi en líka launþegi hverju þarf ég að skila inn til ykkar?
  13. Ég er að vinna á tveimur stöðum, get ég verið í fæðingarorlofi í annarri vinnunni og unnið áfram í hinni?
  14. Hvernig kem ég umsókninni til ykkar?
  15. Ég er bóndi og með reiknað endurgjald, hvaða rétt á ég og maki minn?
  16. Hvenær þarf að senda umsókn til Fæðingarorlofssjóðs?
  17. Er hægt að leggja inn greiðslur á bankareikning maka?
  18. Hvar fæ ég vottorð um áætlaðan fæðingardag?
  19. Ég er búin að skila inn tilkynningu um tilhögun fæðingarorlofs, en núna verð ég að breyta fyrirhuguðum dagsetningum. Hvernig sný ég mér í því?
  20. Get ég tekið orlofið mitt hvenær sem er?
  21. Fæ ég senda launaseðla frá Fæðingarorlofssjóði?
  22. Hvenær fellur réttur til fæðingarorlofs niður?
  23. Hversu langt er fæðingarorlofið hjá móður og föður?
  24. Er réttur foreldra til fæðingarorlofs yfirfæranlegur?
  25. Ræð ég alveg hvernig ég skipti fæðingarorlofinu mínu?
  26. Hverjir öðlast rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði?
  27. Hvernig reiknast greiðslur sem maður fær úr Fæðingarorlofssjóði?
  28. Er eitthvað þak á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði?
  29. Hvað telst samfellt starf?
  30. Eiga foreldrar fjölbura rétt á lengra orlofi?
  31. Eiga foreldrar einhvern rétt ef um fósturlát er að ræða?
  32. Eiga foreldrar einhvern rétt ef um andvana fæðingu er að ræða?
  33. Ég þarf að hætta að vinna vegna veikinda á meðgöngu á ég einhvern rétt á lengingu úr Fæðingarorlofssjóði?
  34. Hvernig er með mæður sem veikjast í tengslum við fæðingu, hvaða rétt hafa þær?
  35. Eiga foreldrar rétt á lengra fæðingarorlofi ef barn þarf að dveljast á sjúkrahúsi?
  36. Eiga foreldrar rétt á lengra fæðingarorlofi vegna alvarlegra veikinda barns?
  37. Hver er upphafsdagur fæðingarorlofs ef um ættleiðingu er að ræða?
  38. Er skylda að taka fæðingarorlof fyrstu tvær vikurnar við ættleiðingu eins og við fæðingu barns?
  39. Reiknast fæðingarorlof til starfstíma, þ.e. réttinda hjá vinnuveitanda?
1. Verð ég að greiða í lífeyrissjóð, stéttarfélag og séreignarsparnað?
Samkvæmt lögum ber þeim sem fá greitt úr fæðingarorlofssjóði að greiða í lífeyrissjóð.  Hins vegar er valfrjálst hvort greiða eigi í stéttarfélag og séreignarsjóð.
2. Greiðir Fæðingarorlofsjóður framlag á móti í séreignarsjóð?
Nei, Fæðingarorlofssjóður greiðir ekki mótframlag.
3. Hvaða máli skiptir það hvort ég greiði í stéttarfélag eða ekki?
Ef þú greiðir ekki til stéttarfélags missir þú öll réttindi hjá viðkomandi stéttarfélagi.
4. Þarf að senda inn skattkort?
Já, það þarf að senda inn skattkort fyrir 20. þess mánaðar sem greiðsla fer fram, ef nýta á skattkortið hér.
5. Fæ ég skattkortið mitt sjálfkrafa til baka þegar síðustu greiðslu er lokið?
Þegar greiðslum er lokið verður skattkortið sent til baka á skráð heimilisfang.
6. Ég er sjálfstætt starfandi einstaklingur, hverju þarf ég að skila inn?
Það þarf að skila inn staðfestingu á að tryggingargjald hafi verið greitt síðustu 6 mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns og einnig þarf að skila inn að búið sé að tilkynna til RSK um lækkun/niðurfellingu á reiknuðu endurgjaldi þann tíma sem fæðingarorlof varir.
7. Við erum ekki skráð í sambúð, þarf að skila einhverju sérstöku vegna þess?
Ef þið eruð ekki skráð í sambúð þá þarf forsjárforeldri barns að veita samþykki sitt fyrir fæðingarorlofi forsjárlauss foreldris.  Einnig þarf að berast faðernisviðurkenning, eða samningur um sameiginlega forsjá sem gerður er hjá sýslumanni.
8. Getur faðir hafið töku fæðingarorlofs fyrir áætlaðan fæðingardag barns?

Barn fætt fyrir 1. júní 2008: Nei, feður geta ekki hafið töku fæðingarorlofs fyrr en við fæðingardag barns í fyrsta lagi.

Barn fætt eftir 1. júní 2008: Já, báðir foreldrar geta hafið töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns.

9. Hvar skrái ég að ég ætli að dreifa orlofinu mínu á fleiri mánuði?

Á eyðublaðinu tilkynning um fæðingarorlof á orlofsskiptingin að koma fram. Í reit 13 hakar þú við að þú ætlir að dreifa orlofinu á lengri tíma og skrifar svo fyrir aftan hvernig þú ætlir að dreifa því.

10. Hvernig fær maður faðernisviðurkenningu?

Faðernisviðurkenningu er hægt að fá hjá sýslumanni eða fyrir dómara skv. ll.kafla barnalaga. Best er að skoða heimasíðu sýslumanna syslumenn.is til að fá nánari upplýsingar.

11. Ég ætla að vera í fæðingarorlofi í mánuð eftir fæðingu barns en töku afgangsins er ekki ákveðinn hvernig sný ég mér í því?
Þú skilar inn tilkynningu um fæðingarorlof fyrir þessum mánuði og síðan þegar þú ert ákveðin/n hvenær þú ætlar að taka hitt þá sendir þú inn nýja tilkynningu undirritaða af þér.  Einnig þarft þú að tilkynna til RSK í hvert skipti sem tekið er fæðingarorlof um lækkun/niðurfellingu á reiknuðu endurgjaldi þann tíma sem fæðingarorlof varir.
12. Ég er sjálfstætt starfandi en líka launþegi hverju þarf ég að skila inn til ykkar?
Þú þarft að skila inn tilkynningu bæði frá vinnuveitandanum og þér.  Einnig þarf að koma tveir síðustu launaseðlar og staðfesting frá RSK um lækkun/niðurfellingu á reiknuðu endurgjaldi þann tíma sem fæðingarorlof varir.  Þú þarft líka að hafa greitt tryggingargjald síðustu sex mánuði fyrir fæðingardag barns.
13. Ég er að vinna á tveimur stöðum, get ég verið í fæðingarorlofi í annarri vinnunni og unnið áfram í hinni?
Ekki ef þú ætlar að vera í 100 % fæðingarorlofi , en hægt er að dreifa orlofi á lengri tíma í skertu starfshlutfalli.
( þetta gildir líka um nefndarstörf, þjálfun og aðra launaða aukavinnu )
14. Hvernig kem ég umsókninni til ykkar?
Hægt er að senda umsóknir og önnur gögn með pósti, tölvupósti eða faxi. Skattkort og læknisvottorð verða að berast með pósti þar sem við þurfum frumritin. Umsókn og tilkynning skulu vera undirritaðar.
15. Ég er bóndi og með reiknað endurgjald, hvaða rétt á ég og maki minn?
Ef þú greiðir 100% reiknað endurgjald miðað við þinn starfaflokk síðustu 6 mánuði fyrir fæðingardag barns þá átt þú rétt á fullu fæðingarorlofi.  Maki bónda á rétt á 50% greiðslum af reiknuðu endurgjaldi maka.
16. Hvenær þarf að senda umsókn til Fæðingarorlofssjóðs?
Umsókn þarf að skila inn til Vinnumálastofnunar eða til Fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga í síðasta lagi sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag.
17. Er hægt að leggja inn greiðslur á bankareikning maka?
Nei, greiðslur verða að leggjast inn á reikning og kennitölu umsækjanda.
18. Hvar fæ ég vottorð um áætlaðan fæðingardag?
Vottorð um áætlaðan fæðingardag er hægt að fá hjá ljósmóður.
19. Ég er búin að skila inn tilkynningu um tilhögun fæðingarorlofs, en núna verð ég að breyta fyrirhuguðum dagsetningum. Hvernig sný ég mér í því?
Þú verður að skila inn nýrri tilkynningu með breytingunni þar sem þú kvittar undir.  Undir liðnum umsóknir/eyðublöð er að finna sérstakt eyðublað sem heitir „Breyting á tilhögun fæðingarorlofs“. Einnig verður þú að tilkynna til RSK um breytingu á reiknaðu endurgjald og senda Fæðingarorlofssjóði staðfest afrit frá RSK.
20. Get ég tekið orlofið mitt hvenær sem er?

Mæður geta hafið orlof allt að mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag og verða að taka 2 vikur í orlof við fæðingu barns en síðan er alveg frjálst hvernig þær taka afganginn, nema að töku orlofs verður að vera lokið áður en barn verður 18 mánaða. 

Börn fædd fyrir 1. júní 2008, Feður geta hafið töku orlofs við fæðingardag barns og verða að ljúka töku orlofsins fyrir 18 mánaða aldur barns.

Börn fædd eftir 1. júní 2008, Feður geta hafið töku orlofs allt að mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns og verða að ljúka töku orlofs fyrir 18 mánaða aldur barns.

Börn fædd eftir 1. júlí 2009, Báðir foreldrar geta hafið töku orlofs allt að mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns og verða að ljúka töku orlofs fyrir 36 mánaða aldur barns.

21. Fæ ég senda launaseðla frá Fæðingarorlofssjóði?
Nei, allir launaseðlar eru sendir í heimabanka viðkomandi.
22. Hvenær fellur réttur til fæðingarorlofs niður?

Réttur til fæðingarorlofs fellur niður er barnið nær 18 mánaða aldri.

Börn fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. júlí 2009 eða síðar:
Réttur foreldra til fæðingarorlofs fellur niður er barnið nær 36 mánaða aldri. 

23. Hversu langt er fæðingarorlofið hjá móður og föður?
Móðir á rétt á þremur mánuðum og faðir á rétt á þremur mánuðum.  Auk þess eiga foreldrar sameiginlegan rétt, þ.e. þrír mánuðir til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða foreldrar skipt því með sér.
24. Er réttur foreldra til fæðingarorlofs yfirfæranlegur?

Barn fætt fyrir 1. júní 2008: Ef annað foreldranna andast áður en barn nær 18 mánaða aldri og hefur þá ekki tekið út allt fæðingarorlofið sitt þá færist sá réttur sem hinn látni hefur ekki þegar nýtt sér yfir til eftirlifandi foreldris.

Barn fætt eftir 1. júní 2008:

  • Ef annað foreldranna andast áður en barn nær 18 mánaða aldri og hefur þá ekki tekið út allt fæðingarorlofið sitt þá færist sá réttur sem hinn látni hefur ekki þegar nýtt sér yfir til eftirlifandi foreldris.
  • Í þeim tilvikum er annað foreldrið andast á meðgöngu barns og barnið fæðist lifandi færist réttur þess látna yfir til eftirlifandi foreldris.
  • Foreldri sem er ófært vegna sjúkdóms eða afleiðinga slyss eða afplánunar refsivistar um að annast barn sitt á fyrstu átján mánuðunum eftir fæðingu þess er heimilt að framselja rétt sinn til fæðingarorlofs sem það hefur ekki þegar nýtt sér til hins foreldrisins að hluta eða öllu leyti. Hið sama gildir um ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur.

 

25. Ræð ég alveg hvernig ég skipti fæðingarorlofinu mínu?
Já svo fremi sem það er fyrir 18 mánaða aldur barns.  Orlofstaka er að lágmarki 14 dagar í einu.  Einnig verða mæður að taka tvær vikur í fæðingarorlof við fæðingu barns.  Annars má taka orlof í heilu lagi, skipta því niður á fleiri en eitt tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli.  Allt er þetta í samráði við vinnuveitanda.
26. Hverjir öðlast rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði?
Þeir sem hafa verið á vinnumarkaði í meira en 25% starfi síðustu 6 mánuði fyrir fæðingardag barns eða þann tíma sem barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur.
27. Hvernig reiknast greiðslur sem maður fær úr Fæðingarorlofssjóði?

Barn fætt fyrir 1. júní 2008: Mánaðarleg greiðsla til einstaklings í fæðingarorlofi er 80% af meðaltali heildarlauna og er miðað við tvö tekjuár á undan fæðingarári barns eða þess árs er barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur.

Barn fætt eftir 1. júní 2008: Mánaðarleg greiðsla til sjálfstætt starfandi einstaklings skal nema 80% af meðaltali reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið tryggingagjald af og skal miða við eitt tekjuár á undan fæðingarári barns.

28. Er eitthvað þak á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði?
29. Hvað telst samfellt starf?

Barn fætt fyrir 1. júní 2008: Með samfelldu starfi er  átt við að foreldri hafi verið í a.m.k. 25% starfi í hverjum mánuði á innlendum vinnumarkaði yfir tiltekið tímabil.  Enn fremur telst til samfellds starfs eftirfarandi tilvik: 
- orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningasamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti.
- Sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur eða er á biðtíma eftir þeim eða hefði átt rétt á þeim hefði hann skráð sig án atvinnu samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.
- Sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga eða er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim skv. almannatryggingalögum hefði hann sótt um þá til TR enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum.
- Sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingarfélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa.

Barn fætt eftir 1. júní 2008: Í viðbót við það sem á við um börn fædd fyrir 1. júní 2008 telst sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefi átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins til starfstíma.

30. Eiga foreldrar fjölbura rétt á lengra orlofi?
Sameiginlegur réttur foreldra til greiðslna framlengist um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
31. Eiga foreldrar einhvern rétt ef um fósturlát er að ræða?
Sameiginlegur réttur er tveir mánuðir vegna fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu. Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð.  Foreldrar verða að vera gift eða skráðir í sambúð til þess að faðirinn eigi rétt. Einungis er heimilt að taka orlofið út næstu tvo mánuði eftir fósturlát.
32. Eiga foreldrar einhvern rétt ef um andvana fæðingu er að ræða?
Sameiginlegur réttur er þrír mánuðir vegna andvana fæðingar eftir 22 vikna meðgöngu.  Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð.  Foreldrar verða að vera gift eða skráðir í sambúð til þess að faðirinn eigi rétt. Einungis er heimilt að taka orlofið út næstu þrjá mánuði eftir andvana fæðingu.
33. Ég þarf að hætta að vinna vegna veikinda á meðgöngu á ég einhvern rétt á lengingu úr Fæðingarorlofssjóði?
Barnshafandi kona sem leggur niður launuð störf af heilsufarsástæðum meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns getur átt rétt á lengingu á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði að hámarki í tvo mánuði.  Beri fæðingu að fyrir áætlaðan fæðingardag barns fellur rétturinn niður frá þeim tíma og hefst þá hið hefðbundna fæðingarorlof.
34. Hvernig er með mæður sem veikjast í tengslum við fæðingu, hvaða rétt hafa þær?
Heimilt er að framlengja rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði til móður um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda hennar sjálfrar sem eru í tengslum við fæðingu.  Miðað er við að veikindi móður megi rekja til  fæðingar sem valdi því að hún geti ekki annast barn sitt.
35. Eiga foreldrar rétt á lengra fæðingarorlofi ef barn þarf að dveljast á sjúkrahúsi?
Þurfi barn að dveljast lengur en sjö daga á sjúkrahúsi vegna veikinda eða fyrirburafæðingar er heimilt að framlengja samanlagðan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði um þann dagafjölda. Upphaf greiðslna miðast þá við fæðingardag barns og lok við fyrstu heimkomu þess, að hámarki fjórum mánuðum síðar.
36. Eiga foreldrar rétt á lengra fæðingarorlofi vegna alvarlegra veikinda barns?
Ef barn er alvarlega veikt og nánari umönnun foreldris er nauðsynleg er heimilt að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði í allt að þrjá mánuði. (Getur bæst við fjóra mánuði vegna sjúkrahúsdvalar).
37. Hver er upphafsdagur fæðingarorlofs ef um ættleiðingu er að ræða?
Við ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur er miðað við þann tíma þegar barnið kemur inn á heimilið en heimilt er að fæðingarorlofið hefjist við upphaf ferðar ef sækja þarf barn til annarra landa.
38. Er skylda að taka fæðingarorlof fyrstu tvær vikurnar við ættleiðingu eins og við fæðingu barns?
Nei, það er ekki skylda, en réttur til fæðingarorlofs fellur niður þegar 18 mánuðir eru liðnir frá því að barnið kom inn á heimilið.
39. Reiknast fæðingarorlof til starfstíma, þ.e. réttinda hjá vinnuveitanda?
Já, starfsmaður í fæðingarorlofi heldur réttindum sínum á meðan hann er í fæðingarorlofi, en ekki launum nema með samkomulagi við vinnuveitanda eða samkvæmt kjarasamning.

Spurt og svaraðReiknivél - útreikningur greiðslnaAlþjóðlegir foreldrarLæknisvottorðÚrskurðir úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmálaisland.isNorræn vefgátt um almannatryggingarInformation & applications in other languagesNorska / norskEnska / english

Samskipti

Vinnumálastofnun -
Fæðingarorlofssjóður
Strandgötu 1
530 Hvammstanga
Netfang / Fyrirspurnir
faedingarorlof@vmst.is

Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:30

Símatími er frá 09:00 - 15:00

Sími: 582-4840
Fax:   582-4850

Kennitala:
450101 – 3380
Bankaupplýsingar:
111 – 26 – 1800


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Fæðingarorlofssjóður