Beint á leiðarkerfi vefsins

Fæðingarorlofssjóður

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála 
 

Foreldri er heimilt að kæra ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík. Sími 545 8100. 

Nefndin fjallar um ágreining sem rísa kann á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 með síðari breytingum. Nefndin kemur að jafnaði saman á tveggja vikna fresti og skal kveða upp úrskurð svo fljótt sem unnt er og eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að henni berst mál.
  • Kæra skal berast nefndinni skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. 
  • Málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd skal að jafnaði vera skrifleg en þó getur nefndin kallað málsaðila eða fulltrúa þeirra á sinn fund.
  • Nefndin skal tryggja að aðili máls eigi þess kost að tjá sig áður en nefndin úrskurðar í því, enda telji nefndin að hvorki afstaða hans né rök fyrir henni liggi fyrir í gögnum málsins.
  • Að öðru leyti fer um málsmeðferð hjá nefndinni samkvæmt ákvörðun stjórnsýslulaga.
  • Vinnumálastofnun skal láta nefndinni í té öll gögn máls, svo og þær upplýsingar og skýringar sem nefndin telur þörf á að afla frá stofnuninni.
  • Úrskurðir nefndarinnar sæta ekki kæru til æðra stjórnvalds. Úrskurðir nefndarinnar koma ekki í veg fyrir að hægt sé að leggja mál fyrir dómstóla.
  • Úrskurðir nefndarinnar um endurkröfu ofgreiddra greiðslna samkvæmt lögunum eru aðfararhæfir.  
  • Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar. Stjórnsýslukæra frestar þó aðför á grundvelli ákvörðunar Vinnumálastofnunar um endurkröfu ofgreiddra greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.
Hér er m.a. að finna upplýsingar um nefndarmenn, málsmeðferð, sérstakt eyðublað fyrir kæru til nefndarinnar og upplýsingar um nauðsynleg fylgigögn.

Spurt og svaraðReiknivél - útreikningur greiðslnaAlþjóðlegir foreldrarLæknisvottorðÚrskurðir úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmálaisland.isInformation & applications in other languagesNorska / norskEnska / english

Samskipti

Vinnumálastofnun -
Fæðingarorlofssjóður
Strandgötu 1
530 Hvammstanga
Netfang / Fyrirspurnir
faedingarorlof@vmst.is

Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:30

Símatími er frá 09:00 - 15:00

Sími: 582-4840
Fax:   582-4850

Kennitala:
450101 – 3380
Bankaupplýsingar:
111 – 26 – 1800


Slóð:

Kæruréttur

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Fæðingarorlofssjóður