Fæðingarorlofssjóður
Frávik frá almennum reglum
Fjölburafæðing
Foreldrar eiga sameiginlegan rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks í þrjá mánuði til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist á lífi. Sama á við ef fleiri en eitt barn eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur í einu.
Fósturlát
Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu eiga foreldrar sameiginlegan rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks í tvo mánuði. Með umsókn skal fylgja læknisvottorð þar sem lengd meðgöngu kemur fram. Einungis er heimilt að taka orlofið út næstu tvo mánuði eftir fósturlát.
Andvana fæðing
Foreldrar eiga sameiginlegan rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði vegna andvanafæðingar eftir 22 vikna meðgöngu. Með umsókn skal fylgja læknisvottorð þar sem lengd meðgöngu kemur fram. Einungis er heimilt að taka orlofið út næstu þrjá mánuði eftir andvanafæðingu.
Leyfi af öryggis- og heilbrigðisástæðum
Barnshafandi kona getur átt rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði hafi henni verið veitt launalaust leyfi frá störfum af öryggis- og heilbrigðisástæðum. Með umsókn þarf að fylgja áhættumat eða greinargerð vinnuveitanda um starfsaðstæður. Enn fremur þarf að fylgja staðfesting vinnuveitanda á því hvenær launagreiðslur féllu niður.
Leiðbeiningar um áhættumat í starfsumhverfi þungaðra kvenna og kvenna sem hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti. (PDF)
Veikindi móður á meðgöngu
Barnshafandi kona sem leggur niður launuð störf af meðgöngutengdum heilsufarsástæðum meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag getur átt rétt á lengingu á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði að hámarki í tvo mánuði. Beri fæðingu að fyrir áætlaðan fæðingardag barns fellur réttur til lengingar niður frá þeim tíma og hefst þá hið eiginlega fæðingarorlof. Með umsókn um lengingu fæðingarorlofs þarf að fylgja læknisvottorð og staðfesting vinnuveitanda þar sem fram kemur hvenær umsækjandi hætti störfum, hvenær launagreiðslur féllu niður og hvenær veikindaréttur var fullnýttur.
Veikindi móður í tengslum við fæðingu
Heimilt er að framlengja rétt móður til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda hennar í tengslum við fæðingu sem valda því að hún geti ekki annast barn sitt. Með umsókn skal fylgja læknisvottorð.
Sjúkrahúsdvöl barns í beinu framhaldi af fæðingu
Þurfi barn að dveljast á sjúkrahúsi lengur en sjö daga í beinu framhaldi af fæðingu er heimilt að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks um þann dagafjölda sem barn dvelur á sjúkrahúsi fyrir fyrstu heimkomu, þó að hámarki fjóra mánuði. Ef um fjölburafæðingu er að ræða gildir dvalartími þess barns sem lengur/lengst dvelur. Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð.
Alvarlegur sjúkleiki barns
Heimilt er að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns sem krefst nánari umönnunar foreldris. Framlengingin getur átt sér stað í framhaldi af allt að fjögurra mánaða framlengingu vegna sjúkrahúsdvalar barns eða í framhaldi af útskrift. Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð.
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun -
Fæðingarorlofssjóður
Strandgötu 1
530 Hvammstanga
Netfang / Fyrirspurnir
faedingarorlof@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:30
Símatími er frá 09:00 - 15:00
Sími: 582-4840
Fax: 582-4850
Kennitala:
450101 – 3380
Bankaupplýsingar:
111 – 26 – 1800
















