Fæðingarorlofssjóður
Fæðingarorlof - fæðingarstyrkur
Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof fer félagsmálaráðherra með yfirstjórn Fæðingarorlofssjóðs. Vinnumálastofnun hefur umsjón með rekstri Fæðingarorlofssjóðs. Sjóðurinn annast greiðslur skv. lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, með síðari breytingum, til foreldra þegar um er að ræða:
• Fæðingu
• Frumættleiðingu barns yngra en 8 ára
• Töku barns yngra en 8 ára í varanlegt fóstur
• Fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu
• Andavanafæðingu eftir 22ja vikna meðgöngu
Greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði fara ekki saman með atvinnuleysisbótum og sjúkra-/slysadagpeningum skv. lögum um almannatryggingar. Heimilt er að þiggja styrk sem nemur allt að 20% af launafjárhæð aukalega á meðan á fæðingarorlofi stendur án þess að til skerðingar á fæðingarorlofi komi. Vakin er athygli á að ekki er heimilt að vinna komi á móti styrknum enda er honum ætlað að mæta þeirri skerðingu sem verður þegar foreldri leggur niður fulla vinnu en Fæðingarorlofssjóður greiðir 80% af meðaltali heildarlauna.
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun -
Fæðingarorlofssjóður
Strandgötu 1
530 Hvammstanga
Netfang / Fyrirspurnir
faedingarorlof@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:30
Símatími er frá 09:00 - 15:00
Sími: 582-4840
Fax: 582-4850
Kennitala:
450101 – 3380
Bankaupplýsingar:
111 – 26 – 1800
















